|
BDSM snýst oftar en ekki um öfgar. Öfgafull áreiti og öfgafull viðbrögð. Allir sem stunda BDSM að einhverju leiti geta búist við því að leikir brotlendi eða “krassi” af og til. Með brotlendingu á ég við að tilfinningaviðbrögð bandingjans (oftast) beri hann eða hana ofurliði þannig að hann eða hún getur brotnað niður. Það getur falið í sér allt frá skyndilegri löngun til að hætta öllu núna strax yfir í grátur og ofurnæmni á allt. Hér er ég ekki að tala um svokallað “SUB-DROP” sem sumir eiga til að finna fyrir eftir BDSM leiki.
Sem betur fer er þetta ekki algengt, en þetta getur engu að síður komið fyrir hjá hverjum sem er. Oftast krassa leikir þegar bandinginn er: a) þreytt(ur) b) ekki nægjanlega upplagður/upplögð c) orkulaus og/eða þjáist af vökvaskorti d) farið of geist í nýja eða harðari hluti e) bandinginn reynir um of á sig (oftast til að þóknast drottnaranum)
Stundum verður maður of spenntur fyrir leik að maður nær ekki að sofa eða nærast nægjanlega og stundum tekur maður sénsinn og lætur til leiðast og vonast til að leikurinn nái að kveikja áhugann. Þetta allt getur verið til staðar.
Það dettur fáum í hug að fara í maraþonhlaup án þess að vera búinn að nærast nægjanlega og það sama á að eiga við um BDSM leiki. Það fer líka enginn í maraþonhlaup án þess að æfa sig. Sama á við um BDSM, farið rólega í nýja hluti. Finnið út í rólegheitum hvernig hlutirnir eru að virka fyrir ykkur áður en stokkið er út í djúpulaugina.
Í löngum BDSM leikjum getur borgað sig að gera ráð fyrir orkuríku nasli og drykk fyrir bandingjann og jafnvel næringarpásum.
Ef það verður brotlending þá þarf að losa bandingjann strax og róa hann niður. Nauðsynlegt er að gefa sig alla/allann að bandingjanum. Bjóða helst upp á næringu og ræða hlutina í rólegheitum. Mikil snerting og umhyggja getur gert mjög gott fyrir bandingjann. Í raun eru þetta allveg “eðlileg” viðbrögð við tiltölulega óvenjulegum aðstæðum.
Drottnarar þurfa alltaf að vera vakandi fyrir þessum möguleika og tilbúnir að bregðast við þeim. Bandingjar eiga að láta vita ef þeir eru ekki í 100% formi þannig að drottnarinn geti farið varlegar í hlutina. Bandingjar þurfa líka að vera vakandi fyrir aðstæðunum sem og sínu ástandi. Ef það tekur t.d. 20 mínútur að losa bandingjann niður úr rólunni, þá verður bandinginn að láta vita 20 mínútum áður en hann verður orkulaus að það þurfi að byrja að losa.
Það kemur líka of oft fyrir að bandingjar reyni um of að þóknast drottnaranum og hlusti þar af leiðandi ekki nægjanlega vel á líkama sinn. Oft er hægt að komast hjá vöðvakrampa með því að drekka nóg og stutt næringarpása (sem n.b. hægt er að blanda inn í leikinn ef því er að skipta) getur gefið einhverjar klukkustundir í viðbót.
|