Merki

This will be shown to users with no Flash or Javascript.

Kvöldnámskeið í erótískum flengingum og hýðingum 14. janúar

December 29, 2009 frá BDSM á Íslandi   Ummæli (0)

Námskeiðið 14. janúnar frestast af óviðráðanlegum orsökum.  Nánar auglýst síðar.

 

Námskeið í erótískum flengingum og hýðingum

 

Fimmtudaginn 14. janúar kl. 19:30 verður kvöldnámskeið í erótískum flengingum og hýðingum. Námskeiðið er öllum opið. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður svo menn verða að skrá sig. Fimmtudaginn 28. janúar verður námskeiðið endurtekið, en verður þá eingöngu fyrir karlmenn, enda Þorrinn genginn í garð.

  • Farið verður yfir öryggi, tilfinningar og líkamleg atriði,
  • Aðferðir og leiktæki kynnt
  • Sýnikennsla á fyrirsætu
  • Spurningar og umræður á eftir

Námskeiðið er hugsað fyrir bæði drottnara og (ekki síst) undirgefna, sem og alla áhugsama.
Leiðbeinandi er sadomaso

Námskeiðið er frítt fyrir þá félagsmenn í BDSM á Íslandi og MSC sem hafa greitt félagsgjald á árinu 2009, en aðrir þurfa að greiða námskeiðsgjald kr. 1.000.

Til að skrá sig á námskeiðið og fá nánari upplýsingar þarf að senda tölvupóst á BDSM á Íslandi: bdsm (hjá) bdsm.is.

Minnum á að enn er hægt að greiða félagsgjald BDSM á Íslandi fyrir 2009/2010, en eindagi er 31.12.09. Félagsgjaldið er kr. 1.500 og gildir í heilt ár eða til loka árs 2010 ef menn greiða fyrir 01.01.10.

Eftir ármót verður ekki hægt að greiða félagsgjald fyrr en eftir aðalfund félagsins sem verður haldinn fyrir 31. mars 2010.

Bankareikningur félagins er: 0515-26-004911, kt:491199-2969 (vinsamlegast sendið kvittun til bdsm (hjá) bdsm.is)

Minnum einnig á næsta kaffihúskvöld fimmtudaginn 7. janúar þar sem hægt verður að fá nánari upplýsingar um námskeiðið (nánar auglýst síðar).

BDSM á Íslandi í samvinnu við MSC