August 1, 2010 frá sado
Ummæli (6)
Hvar ertu staðsett/ur í BDSM?
http://quizfarm.com/quizzes/Sex/poeticthinker/do-you-have-an-inclination-for-bdsm/
Sadist
100%
Switch
100%
Bondage
100%
Exhibitionist / Voyeur
96%
Submissive
93%
Masochist
71%
Dominant
71%
Experimental
71%
Degradation Lover
43%
Vanilla
32%
July 15, 2010 frá sado
Ummæli (21)
Við erum nokkur sem höfum hug á að endurvekja munchin. Ef það gengur upp þá er hugmyndin að reyna smá saman að mynda smá kjarna sem tæki að sér að halda þessu gangandi þannig að öll ábyrðgðin væri pínulítið dreyfð.
Planið er að hittast fyrsta miðvikudag hvers mánaðar á einhverju veitinga eða kaffihúsi bæjarins klukkan 20 og sitja þar fram eftir kvöldi eins og hver og einn nennir.
Hvernig hljómar þetta í ykkar eyrum?
January 12, 2010 frá sado
Ummæli (7)
Mér hefur fundist stundum bera á því að fólk setji heví eða harða bdsm leiki skör ofar heldur en mjúkt bdsm. Þar er ég mjög ósammála. Hart bdsm ert ekkert betra heldur en mjúkt, það er bara öðruvísi, sumir fíla það og aðrir ekki. Það er ekki einu sinni sjálfgefið að BDSM verði harðara með tímanum hjá fólki þó vissulega geti leikir þróast. Gott BDSM er einfaldlega það sem skilur þátttakendurna eftir ánægða. Þú átt eingöngu að gera hluti sem ÞÚ ert sátt(ur) við. Aldrei fara út í neitt sem þú ert ekki 100% tilbúinn í og það borgar sig að fara rólega og varlega þegar nýjir hlutir eru prófaðir.
Ábyrgð drottnara er mikil, enda er það í mörgum tilfellum kikkið þeirra.
drottnari þarf að vita eftir hverju Subbinn sækist eftir í leiknum.
drottnari þarf að vita hversu langt má ganga hverju sinni
drottnari þarf að fylgjast með öllu atferli Subbans og vera tilbúinn til að hægja á ferðinni eða jafnvel stöðva leikinn hvenær sem er ef viðbrögð Subbans eru úr samhengi við aðstæðurnar.
drottnari þarf að þekkja sín takmörk bæði andleg og líkamleg. Þá á ég við að drottnarinn geri ekki hluti sem honum/henni líður ekki vel með eða hefur ekki næga þekkingu á.
drottnari má aldrei vitsvitandi brjóta skýr mörk sem Subbi hefur sett.
Ábyrgð Subba er einnig mikil að sama skapi.
Subbar þurfa að láta drottnara vita eftir hverju þeir eru að sækjast eftir.
Subbar þurfa að láta það skýrt í ljós hvað má og hvað má ekki. Ef þið eruð ekki viss með eitthvað... prófið á sjálfum ykkur fyrst
Subbar þurfa að setja skýr mörk varðandi hversu langt má fara hverju sinni.
Subbar þurfa að vera úthvíldir og vel nærðir fyrir leik.
Subbar eiga ekki að fara út í neitt sem þeir eru ekki 100% sáttir við.
Subbar eiga að láta vita STRAX ef þeim er farið að líða illa (t.d. flökurt/höfuðverkur/blóðleysi í útlim...).
Sumar fantasíur eiga bara að vera fantasíur. Það getur verið leiðinleg lífsreynsla að uppgötva að risastóra munnkeflið sé allt of stórt til að hafa lengur en nokkrar mínútur og fantasían með að vera keflaður(uð) í kjallaranum í heilan dag er kannski ekkert svo spennandi 5 mín eftir að lyklinum hefur verið snúið í skránni.
Mjúkt eða hart bdsm skiptir ekki máli... þú átt að gera það þig langar og þér líður vel með.
