Um

bindileikir.net er vettvangur fyrir kinký fólk á Íslandi að tjá sig og kynnast á, deila því sem finnst áhugavert og hugsanlega læra eitthvað nýtt.

Hér skapast vonandi hresst, bætandi og kætandi andrúmsloft, góður staður til að líta inn á eftir dagsins amstur, sjá hvað aðrir eru að perrast og fá kannski nokkrar hugmyndir til að leika sér með í kvöld.

Orðið bindileikir hefur oft verið notað í hæðni um hvatir fólks til að leika sér fyrir utan rammann í svefnherberginu og því er upplagt að nota það orð sem nafn á þennan vef sem er þó fyrir fólk sem tekur bdsm / fetish áhuga sinn alvarlega en hefur jafnframt húmor fyrir sjálfu sér.  Þetta er kannski líka það orð sem kemst næst því að þýða enska orðið bondage sem er mikið notað samheiti yfir öðruvísi kynhegðun.  Það þarf ekki að hafa áhuga leikjum með fjötranir sérstaklega til að finna sér samastað á þessum vef; ef þú ert meira en venjulega mikið fyrir leðurstígvél en lítið fyrir annað í allri þessari flóru, þá er þetta staðurinn fyrir þig.

Þessi vefur er einstaklingsframtak, óháður félagasamtökum og öðrum hópum, og hugsaður sem viðbót við þá ágætu vefi sem eru þegar til staðar innan hinnar svonefndu íslensku senu; bdsm.is, fetishiceland.com, ufsm og hvað annað sem er þarna úti; á netvafri um blætisvefsetrin er gott að hafa úr að velja og hér er komin nýr staður til að líta inn á að Blætisbrekku 42 - vonandi skemmtið ykkur vel!