Trúnaður

Aðeins ein manneskja hefur stjórendaaðgang að þessum vef, vélinni sem hýsir hann og tilheyrandi gögnum, og stefnt er að því að svo verði áfram.  Þetta fyrirkomulag kann að reynast óheppilegt ef viðkomandi verður fyrir strætó, svo útnefning varamanns verður skoðuð.  Gögn vefjarins, svosem einkasamskipti í gegnum skilaboðakerfið, verða ekki afhent þriðja aðila nema að gengnum dómsúrskurði.

Vert er að hafa í huga að ef þú hafðir ekki fyrir því að dulkóða gögnin, þá eru þau tæknilega aðgengileg hjá þeirri þjónustu sem hýsir þau.  Ef þú til dæmis kærir þig ekki um að rekstaraðili þessa vefjar hafi tæknilega aðgang að einkasamskiptum sem kunna að hefjast í gegnum skilaboðakerfið hér, þá er vert að taka þau út fyrir vefinn, til dæmis á kaffihús eða í tölvupóst hýstan erlendis (sem er vissulega læsilegur viðkomandi hýsingaraðilum en þeir kunna kannski ekki íslensku). 

Annars fullyrðir rekstaraðili þessa vefjar að hann eigi sér eitthvað líf og hafi annað við tímann að gera en að kafa ofan í gagnagrunnstöflur í leit að lífsfyllingu.